Uss...nenni ekki þessu
bloggi...
Allavega...þá kom Unnur síðustu
helgi...við Rósa mættum að sjálfsögðu að sækja hana uppá Piccadilly
station. Og fþví við erum svo efnaðar þá var tekinn strætó heim til
mín. Vi tókum því rólega á föstudeginum..aðeins hlegið..svo vaknaði
ég eiturhress til að passa á laugardeginum. Ekki það að mér leiðist
það. Hún var nú greyið orðinn veik. Héldum að hún væri bunað
hrissta þetta af sér. Allavega, þá var Katrín bara í kúrustuði.
Vildi bara kúra eða sofa. Sofnaði meira segja ofan á mér. Þannig að
við fórum ekki útúr húsi fyrr en um 5 leytið. Svo var skellt í sig
nokkrum konubjórum, svo útað borða og svo djamm. Og já..ég fór
næstum í slag við gaur sem jaðraði við að vera dvergur. Hann var
alltaf að slá mig í rassinnn og stóð svo bara og hló geðveikt..lét
eins og hann væri svona 14. Ég var alveg brjáluð..blótaði honum í
sand og ösku á íslensku..hann og vinir hans urðu svo hræddir við
tungumálið að þeir báðust afsökunar og hipjuðu dig útaf staðnum.
Íslenska er greinilega geðveikt scary tungumál hérna...Við hittum
svo stórskemmtilega íra..Þeim var jafn vel við breta og
mér..hehe...svo voru þeir bara á hótelinu sem er hérna rétt hjá.
Sem þýddi frír leigubíll fyrir okkur stelpurnar.
Svoooo..á sunnudeginum þá var aðeins
kíkt niðrí bæ..svo héldum við bara heim..til okkar
þeas..
Svo er Katrín komin með vírus..er
agalega glöð alltaf. Þarf að gefa henni 3 ílla lyktandi meðul. Sem
hun japlar á að bestu lyst..hún borðar líka allt!
Svo kemur hún Þóra á morgun...Hlakka
geðveikt til!!Svo langt síðan hún var að panta flugið...svo er hún
bara að koma á morgun!!
Svo líður tíminn hérna svo hratt!!22
dagar þangað til ég fer heim. Hlakka svo til að hitta alla...og já
darri..þar sem ég á engann pening þá því miður get ég ekki boðið
þér hingað...því miður...verður bara að ræða við efnaða vin þinn
hann Jón um að splæsa flugferð á þig
Svo vil ég segja eitt..það var ráðist
á gamlann mann í Öskjuhlíð fyrir nokkrum vikum. Þetta var gamall
vinnufélaga pabba míns, sem er að verða sjötugur. Hann er öryrki
sem tínir dósir til að eiga sma meiri pening. Það var semsagt bíll
sem stoppaði og krakkar á mínum aldri sem komu út. Tveir héldu
honum meðan þriðji lamdi hann og sparkaði í hann!Ég skil bara ekki
hvað er að fólki í dag..að finnast svona í lagi!!!Eins með
stelpurnar sem er verið að nauðga bakvið hús og svona í miðri
Reykjavík..það vantar eitthvað mikið í þetta fólk og það ber
greinilega enga virðingu fyrir neinum!!
Ætla róa mig aðeins
hérna...
Skrifa næst kannski bara á
mánudag...sem er meðal annars afmælisdagur systir
minnarJ